Þá er komið að heimferð en hér í Barclay Court er allt að verða klárt og allir spenntir að fara heim til Íslands. Pétur Freyr er reyndar veikur en hann fékk matareitrun í gær og er ansi veikur og slappur. Pabbi hans fór með hann á sjúkrahús í nótt þar sem hann fékk sýklalyf í sprautuformi. Við ætlum að leggja af stað en hann er betri í dag en í nótt. Vonum bara að allt gangi vel og við sjáumst á morgunn og næstu daga.
Þangað til við sjáumst...........................NJÓTIÐ HELGARINNAR.................. Pétur Freyr með "Húfuna" flottu að hlusta á Hátíðarræðu skólastjórans sem var verulega góð og gékk út á það að hafa trú á sjálfan sig - að gefast Aldrei upp og að umgangast fólk sem hugsar Jákvætt........reyna að forðast neikvætt fólk því það dregur allt og alla niður..............MJÖG GOTT.
Athöfnin var mjög létt en hátíðleg og byrjaði kl. 10 á Hyatt-Hótelinu í Sarasota. Ræðurnar voru flestar fínar þó má segja það að sú (Golfstelpa) sem fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur hafi að mínu mati verið með bestu ræðuna.......allavega hreyfði hún við mér og ræða skólastjórans eins og fram hefur komið var líka verulega góð. Eftir að stúdentarnir voru búnir að henda "Húfunum" var smá hlé sem var vel notað hjá flestum til að mynda.
Pétur Freyr og Aron en eins og sjá má greiddu þeir sér sérstaklega fyrir þessa myndatöku.
Eftir hléið var svo "Brunch." Maturinn var mjög góður og flott framreyddur. Þessu lauk um eittleytið. Veðrið var æðislega gott en hitinn fór upp í 35 stig í dag.
Verulega stoltir foreldrar ásamt Stúdentnum.
Núna á að fara að pakka og svo er það heimferð á morgunn. Við ætlum að fá okkur eitthvað létt að borða með Aron - Helgu og Jóa í kvöld. Við erum orðin spennt að koma heim.
Ómar Sigurvin kláraði prófin sín í dag og er mjög ánægður með að vera búinn í bili en honum gékk ágætlega en hann var orðinn mjög þreyttur á lestrinum undir lokinn.
þórunn útskrifaðist sem Stúdent í dag úr MR...............til hamingju.
Þangað til næst......................NJÓTIÐ HELGARINN..........
Pétur Freyr fékk einkunnirnar í dag og honum gékk vel. Niðurstöðurnar eru:
Art.....................................A
American Literatur.........B
American History............A
Algebra.............................A
Marine Science................B
A=90-1OO
B= 80-90
Það kom mér skemmtilega á óvart að Pétur Freyr skyldi fá A í Art því hann hefur aldrei sýnt neinn áhuga í þá átt og svo hafa "flestir" kennarar sem hafa kennt honum eitthvað þessu tengt kvartað yfir "áhugaleysi" hjá honum.
Úskriftin er á morgunn kl. 10.30. Pétur Freyr er búinn að fá "Húfuna Og Skikkjuna sem er blátt á litinn.....................mjög fallegur litur.
Gæjaleg Mynd..................................Finnst Mér.................................
Eins og fram hefur komið hafa Pétur Freyr og Rún verið í game on sem er virkilega spennadi prógram. Þau hafa verið einu sinni í viku í allan vetur. Þetta prógram byggist á því að kenna þeim að koma fram. Eiginlega að geta selt sig sem íþróttamann. Því það skiptir máli hvernig þú kemur fram þegar viðkomandi er að reyna að fá "sponsera." Ætti að kenna þetta í grunnskólum. Þetta er mikið til leikræn tjáning.............erfitt en skemmtilegt skylst mér. Ég fór í tvo staka tíma með skólanum mínum og ég var svo spennt og stressuð allann tímann. Ég þyfti að taka einn vetur í svona dæmi.
Game On..............staff og leikmenn í Péturs Freys hóp.............................
Pétur Freyr og Rún.........................þó aðallega Pétur Freyr hafa verið í líkamsrækt í vetur og eru þau í litlum hópum. Þau voru ekki saman en með sama kennara sem er mjög vinsæll og fær í því sem hann er að fást við. Líkamsræktarþjálfarinn heitir Cory.
Rún - Cory - Julie í góðum gír.........................................
Þangað til næst.................NJÓTIÐ DAGSINS............
Set hér inn eina skemmtilega mynd sem við fengum senda í gær en þessi mynd er tekin í New york í feb. s.l. og er af Pétri Frey og Aðal-Gæjanum í Queer Eye For The Straight guy....
Þangað til næst............NJÓTIÐ DAGSINS.................
Þetta var síðasti dagurinn hennar Rúnar í golfinu hjá IMG þetta Seasonið og jafnvel síðasti tíminn hennar hjá Bobby. Hver veit?
Rún tók tvö próf í dag og gefur ekki upp hvernig henni gékk................kemur í ljós.
Rún leggur svo af stað til Íslands á morgunn og hlakkar verulega til.
Pétur Freyr tók stærðfræðiprófið í morgunn og honum gékk mjög vel.
Við Pétur G. hittum Emily í dag en hún ætlar að sjá um húsið okkar í sumar. Það er afar nauðsynlegt að einhver fylgist með því þetta er jú aðal hurricane-tímabilið.
Veðrið er æðislega gott eins og hefur verið undafarna daga. Vel yfir 30 stiga hiti og sól.
Pétur Freyr spilaði á 6 höggum yfir pari vallar í gær á National Championship. Pétur Freyr komst ekki í gegnum niðurskurðinn en hann var aðeins einu höggi frá því.......askoti leiðinlegt en svona er þetta stundum. Guðjón Ingi var mun betri á seinni hringnum en hann spilaði á 84 höggi ( 12 yfir pari). Það voru þrjár holur sem fóru illa með Pétur Frey á þessum hring......eitt lélegt högg og einn röng ákvörðun kostuðu hann fjögur auka högg. Pétur Freyr spilaði seinni níu á parinu.
Það er sama góða veðrið hér í Palm Beach Gardens. Pétur Freyr á rástíma 2.32. í dag. Það varð að fresta leik í gær vegna þrumuveðurs svo þeir sem kláruðu ekki í gær byrjuðu snemma í morgunn og kláruðu hringinn síðan í gær. Það frestast allt um ca 50 mínútur.
Við fylgjumst með gangi mála á Hellu og okkur fannst hringurinn hjá Óla B. LOfts frábær......vonandi að hann spili vel og vinni þetta fyrsta mót.
Þangað til næst........................................NJÓTIÐ DAGSINS.................................
Guðjón Ingi Kristjánsson úr GKG er meðal keppanda hér en hann hafði ekki lokið leik þegar þetta er skrifað svo ég set inn skorið hans á morgun.
Pétur Freyr var auðvita Svekktur en var fljótur að jafna sig eftir að hann var kominn í hús. Pétur Freyr á rástíma kl. 13.30 á morgun en í dag var rástíminn hans 8.32.
Ricco (með Pétri Frey í hóp) - Pétur Freyr og Rick besti vinur Péturs Freys hér en Rick spilaði á Parinu í dag en Ricco var á sama skori og Pétur Freyr 77 höggum.
Rún "skvísa" fékk viðurkenningu í loka-dinnernum í gær hjá FCWT en hún er ein af nokkrum sem fékk viðurkenninguna "Faces Of The Future" og fékk hún voða flottan áletraðann skjöld. Rún ásamt vinkonum sínum Rachel frá Sviss - Crash frá Sarasota og Julie frá Origon USA.
Þangað til næst.................................NJÓTIÐ HELGARINNAR.
Pétur Frey fór með IMG hópnum til Palm Beach Gardens í dag......tekur æfigarhring á morgun og svo byrjar mótið sem eru þrír dagar á laugardag.
Rún er öll að koma til í fætinum og spilaði hún 9 holur á miðvikudag og var alla æfinguna í dag sem er mikil framför. Rún bauð Julie vinkonu sinni með okkur að horfa á Pétur Frey og þær er voða spenntar. Við ætlum fyrst að keyra allar á morgun og ná í Pétur G og síðan keyrum við á áfangastað. Þetta verður langur dagur.
Ég kvaddi Beth vinkonu mína í dag og það var askoti leiðinlegt. Beth og fjölskylda koma ekki aftur næsta haust til FL. svo það getur verið langt í að ég sjá hana aftur. Beth fer á sunnudaginn. Ég veit að ég á eftir að sakna Beth mikið. Beth er ansi skemmtileg - litrík og góð manneskja sem er gott og gaman að vera nálægt, Hér er ein mynd af okkur vinkonunum og Mömmu Beth....Marilyn en við fengum okkur léttan 3ja tíma hádegisverð í dag.
Þangað til næst..................... NJÓTIÐ VINANNA.............................
Þangað til næst..................................NJÓTIÐ DAGSINS.............................